Þóra Marý;)
08.05.2007 10:46:26 / thora9

Nýtt blogg!

já þá er komið að því, ég hef ákveðið að færa mig um sess. við vinkonurnar erum komnar með nýja síðu sem er:

www.123.is/spidergirls  =)

síðan er ekki alveg tilbúin en hún er öll að koma til og mun af öllum líkindum vera orðin flott í lok vikunnar;) ætlum að vera duglegar að setja inn myndir of að blogga ;)

ég hef semsagt ákveðið að setja þetta 3 ára blogg á hilluna og hefja nýtt og betra blogg.

takk fyrir mig=)


» 0 hafa sagt sína skoðun

03.05.2007 12:02:04 / thora9

Sumarið er komið=)

úff já það má með sanni segja að sumarið sé komið, það er búið að vera geggjað veðiur alla vikuna nema reyndar í gær og ég vorkenni þeiim sem þurfa nú að sitja inni yfir bókunum, þar sem próifin eru nú komin á fullt. ég er nú frekar heppin með þetta allt saman og slepp við 3 próf, sál203, sál333 og ísl 403=) þetta er semsagt öll prófin sem þarf mest að læra fyrir að mínu mati. hehe en já nóg um það.

Það er frekar langt síðan ég bloggaði síiðast oig ég get ekki kennt neinu öðru um en þessari blessaðri leti sem hefur verið að herja á mig síðustu vikur.. það er nú samt alveg heilmargt búið að gerast síðan, lokaballið var á síðustu helgi og það var alveg mjög gaman þar, dimmiterging og palli tíok sig bara vel út í þessum englabúningi og hvað haldiði, hann náði að vaka allann daginn og alveg þangað til ballið var búið. ætli það hafi ekki verið persónulegt met. en já það var semsagt smá teiti hér í kotinu okkar sen bara lítið og við skemmtum okkur frábærlega held ég allavega, ég segi það allavega fyrir mína hönd. en já svo er skólinn að verða búin og ég er komin í algjörann siumarfíling, byrjuið að labba út um allt í staðinn fyrir að nota bílinn og svona, rosa gaman. hehe já en nóg af því.

það eru bara 26 dagar þangað til við palli förum til danmerkur og mér farið að hlakka svooooo til.. við erum semsagt að fara að versla, versla, heimsækja Högna, bróðir palla og já að versla ennþá meira hehe :)

ætli ég segi það þá ekki bara gott að sinni og kveði her og nú;)

 

p.s. ég ábyrgist ekki stafsetningarvillur þar sem að lyklaborðið mitt er í algjöru fokki, vantar takka og þannig en vona að þetta sé samt skiljanlegt)


» 0 hafa sagt sína skoðun

22.04.2007 23:18:27 / thora9

afmæli

já ég hef ekki verið dugleg að blogga núna, en já ég get sko sagt ykkur það að það er búið að vera frekar mikið að gera hjá mér núna, skólinn, próf, vinnan og bara já helling. en já núna er ég í vinnunni, allir sofandi svo það er bara rólegt hjá mér næuna. ég vil líka benda á að i takkinn á tölvunni minni datt af þannig að ef það verður skortur á i í þessu bloggi þá hefur það sína ástæðu=)

en já ég veit ekki hvar ég á að byrja, það er svo mikið að segja og ég nenni ekki að segja það allt svo að ég ætla bara að hafa þetta stutt blogg núna og koma svo með eitt gott blogg í vikunni.

en já það er gaman að benda á það að það eru tvö afmæisbörn þessa vikuna:

Guðrún Hulda, varð 18 ára í gær, 21 apríl. Til hamingju með það skvísa=)

Guðrún og Þóra, gellur

 

og svo er það Arna Lind, systir mín sem varð 23 í dag. Tl hamingju með það sæta!! Hér kemur ein systramynd, Arna er lengst til vinstri ef þið vitið það ekki.. ekki eins og við séum líkar;)

 

en já þá held ég að ég ljúki þessu bloggi bara hér og nú=)

kv. Þóra ;)


» 3 hafa sagt sína skoðun

09.04.2007 00:41:03 / thora9

Gleðilega Páska

hæhæ allir og gleðilega páska=)

frekar langt síðan maður hefur bloggað hér, en já páksafríið fer bráum að taka enda, á orgun þar sem að það er nú kominn mánudagur.. en já ég er semsagt á næturvakt, og allir eru sofandi svo að það er lítið að gera hjá mér..

var líka á næturvakt á fös-lau kom heim kl 8 á lau morgun, svaf til 10 og svo aftur til 12 og þá fór ég á sklíði. ég labbaði með Arnór Óla, dró hann á sleða upp hálfa miðfellsbrekkuna, sem var btw ekkert smá brott og plús það þá vorum við sko að fara í röðina fyrir páskaeggjamótið og röðin hækkaði alltaf lengra upp í brekkuna og ég þurfti að labba lengra og lengra í hvert sinn. við kepptum svo á sleða með glæsibrag, slepptum samt nokkrum portum hehe þetta var svo hart færi að við runnum bara geggjað hratt og ég get hvorki bremsað né stýrt.. frekar smeik en þetta heppnaðst þó og núna er ég að deyja úr harðsperrum bæði í höndum og fórum.. en svo fór ég aftur að vinna kl 12 og til 8 á sunnudagsmorgun, þá fór ég heim og svaf alveg til hálf 6.. mjög gott, fór heim til mömmu og fékk svínakjöt geggjað gott í morgunmat hjá mömmu, það var reyndar kvöldmatur fyrir alla aðra hehe..

og núna er ég aftur mætt alveg eitiurhress í vinnu og þarf að klára e-ð ísl verkefni í nótt, ef ég skila því ekki á réttum tíma fæ ég skróp í 10 tímum sem já sökkar!

en svo að ég hætti nú að tala um e-ð leiðinlegt þá eru pákskarnir búnir að vera mjög fínir, fékk alveg dýrindis páskaegg í morgun, eða um hálf sex seinnipartinn hjá ykkur en já búin að vera að narta í það þangað til að ég fór að vinna og svo kem ég hingað og það er alveg risa páskaegg á boðstólnum=) hef ekki gott á þessum svo að við verðum að taka á þessu eftir páksa og vera duglegar í stúdíóinu...

en ætla ekki að hafa þetta lengra að sinni veriði sæl=)


» 1 hafa sagt sína skoðun

02.04.2007 20:57:32 / thora9

Allir að kommenta!

Já ég er komin frá Reykjavíkinni og búin að gera alveg helling. fórum fljúgandi á lau morgun og fórum þá á subway, en ekki hvert haha:) mmm það er svooo gott. en já vor var ferðinni heitið í sveitasæluna til hennar Örnu systir, Sigga og auðvitað Köru Líf. það var bara gaman, Kara orðin ekkert smá stór og ekkert smá sæt. um kvöldið fórum snæddum við svo góðann mat og fórum svo í fjósið hjá teingdaforeldrum Örnu.. ekkert spes, ekkert litlar þessar kýr, ég var frekar hrædd get ég sagt ykkur hehe. en svona til að losna við fnikinn af þessum beljum þá fórum við æi pottinn og höfðum það bara kósí og ég og arna fórum á sundfötunum einum á trampolín sem var á túni þarna í grend, fekar kalt en gaman ;)

á sunnudeginum var svo kíkt aðeins í kringluna, aftur á subway;) og svo í fermingu til Eyrúnar, frænku hans palla og það var bara fínt, góður matur og svonna. en í dag vöknuðum við bara snemma og héldum á búðarrölt að eyða aðiens meri peningum haha. verslaði alveg heilann helling. og svo var baa flogið aftur heim. er núna bara uppí rúmi að hafa það gott enda þreytt eftir allt þetta búðarflakk.

en já ég fann svona smá komment-dæmi á einhverri síðu og allir eru vinsamlegast beðnir um að kommenta og svara þessum spurningum

Virðingarfyllst. Þóra Marý :D

1. Miðnafnið þitt: 
 

2. Aldur:

3. Single or Taken:

4. Uppáhalds bíómynd:

5. Uppáhalds lag:

6. Uppáhaldshljómsveit:

7. Dirty or Clean:

8. Tattoo eða göt:

9. Þekkjumst við persónulega?

10. Hver er tilgangurinn með lífinu?

11. Myndiru bakka mig upp í slagsmálum?

12. Myndiru þaga yfir leyndarmáli ef það skipti mig máli?

13. Besta minningin þín um okkur?

14. Myndir þú gefa mér nýra?

15. Segðu eitthvað skrýtið um þig:

16. Myndir þú hugsa um mig ef ég væri veik?

17. Getum við hist og bakað köku?

18. Hefuru heyrt kjaftasögu um mig nýlega?

19. Talaru eða hefuru talað illa um mig?

20. Finnst þér ég góð manneskja?

21. Myndir þú keyra með mér hringinn í kringum landið?

22. Finnst þér ég aðlaðandi?

23. Hverju myndiru vilja breyta í mínu fari?

24. Í hverju sefuru?

25. Kæmiru í heimsókn af tilefnislausu, bara til að chilla?

26. Myndir þú koma á stefnumót ef ég myndi bjóða þér?

27. Ef ég ætti einn dag ólifaðann, hvað myndum við gera?

28. Ætlaru að setja þetta á þína síðu svo ég geti fyllt þetta út?

 

Ps.

ákvað að hafa þetta blogg svona gult í tilefni páskanna. meður verður nú að skreyta e-ð;)


» 3 hafa sagt sína skoðun

26.03.2007 11:22:19 / thora9

blablabla

já ég er í nát 123 tíma og ég er að mygla, hann jóhann kennarinn er svo leiiiiiiiiiðinlegur að ég hef bara aldrei kinnst öðru eins. hann er búin að röfla í næsum klukutíma og það er enginn að fylgjast með greyið... hann er bara ekki með kennara genin í sér!

en já nóg um það... helgin bara ágæt, samt mikið að gera hjá mér.. var að vinna með Maríu á lau alveg allann daginn og það var bara fín.. svona loksins er maður í vinnu með almenninlegum móral, engin í fýlu, engar skapsveiflur bara rólegheit;) svo var ég aftur að vinna með henni í heilann klukkutíma í gær hehe.. en já var að vinna til 12 og var að reyna að læra e-ð fyrir sálfræði próf sem var í morgun, held að mér hafi bara gengið vel sko;) svo ætluðum við María í spinning í morgun, já við erum orðnar svo duglegar núna, en já hún lét drauminn minn rætast þegar hún beilaði á þessu haha, var ekki að geta vaknað:)

en já þá erum við báðar búnar að beila einu sinni svo að það er jafnt og nú er það bara harkan 6 er það ekki María?

5 dagar þangað til við Palli förum suður, get eki beðið!

en nenni ekki að blogga meira í bili..

I'm out


» 1 hafa sagt sína skoðun

21.03.2007 13:01:56 / thora9

HATA LÆKNA!!!!!

já ég var semsagt hjá tannlækni á mánudaginn til að láta taka úr mér e-a helvítis endajaxla, en nei þetta leit víst e-ð illa út og það var e-ð þvíkt vesen að ná þessu helvíti. núna er miðvikur og 2 dagar síðan þessi aðgerð fór fram og er ennþá að drepast í Helvítis kjaftinum og lít úr eins og hringjarinn í Notredam og ég er ekki að djóka, þetta er hræðilegt og ég get sagt ykkur það að þetta geri ég aldrei aftur, sama þótt ég muni drepast þá bara ekki sjens!

en já nóg um það.. hehe ég er í skólanum sem er hundleiðinlegt var að koma úr nát 123 og ég og Eva eru sko að  mygla í þessum tíma, kennarinn er ömulegur, kennir ekki neitt og þar að euki hundleiðinlegur og kann ekki að tala.. já eins og  þið sjáið þá er þetta ekkert mín uppáhalds vika hehe.

svo að við vindum okkur í e-ð skemmtilegra þá er ég að fara mað arnór óla sæta í klippingu í dag, ég er víst sú eina í fjölskyldunni sem má fara með hann.. en já og ´svo núna á helginni erum við marí að fara að vinna saman, í fyrsta sinn svona langann vinnudag svo að það verður bara gaman og svo á næstu helgi erum við palli að fara suður, er að fara að heisæka Örnu, Sigga og hna Köru Líf litlu sætu.. ohh hún er orðin svo stór og sæt og ég sakna hennar svo endalaust. en ætla að ljúka þessu bloggi með mynd að krúttlunni;)

 

Þú færð kraft úr Kókamjólk;)

bæbæ, blogga aftur seinna=)


» 0 hafa sagt sína skoðun

17.03.2007 13:57:23 / thora9

þvílíkt föstudagskvöl

já gærkvöldið var alveg þvílíkt..

fór eftir vinnu í afmælið til óla, snæddum og svolles, bara fjör sko.. en já svo fórum við í partý sem var fámment og já það er hægt að segja mikil drykkja. einn på hospitelen og þannig.. en já og svo kom nottla loggan og solles. en já hann greyið óli þurft að eiga afmælisnóttinni bara að rúnta.. hehe og hlusta á kynlífsumræður.. haha já gaman af þessu.. veit samt ekki hvort honum hafi funist þær neitt skemmtilegar hehe:) en já það er nú meira. það gerðist alveg helling í gr en semt eila ekki neitt.. hmm.. furðulegt hehe. svo týndi ég símanum mínum:( en er búin að finna hann.. ég er alltaf að týna honum en finn hann alltaf aftur.. annað er sumir sem hafa þurft að keupa sér fleiri fleiri síma því að þeir hafa týnt hinum. ég er greinilega bara svona heppin, hehe enda hef ég alls ekkert efni á því að kaupa mér nýjann síma núna um þessat mundir..

en já ég og palli erum að fara til Danmörku í sumar, eða eila bara um leið og hann er búinn að útsifast, það verður sko stuð! hlakkar ekkert smá til. erum að fara að heimsækja högna bróðir Páls og svo verður maður nú að versla HELLING í köben, það þýðir ekkert annað. en það er eitt geggjað skrítið, allir sem ég þekki hafa farið til danmörku, meira að segja litli frændi minn sem er 2 ára. en ég hef aldrei farið þangað sem mér finnst geggjað skrýtið miðið við það hvað ég hef farið oft til útlanda, oftan en flestir vini mínir. ég hef samt ekki farið til margra landa. en já það verður bara gaman.

en já hér er ég, ekki svo lang síðan ég vaknaði og hef bara ekkert að gera. Páll er í reykjavík að keppa í sundi og honum gengur geggjað vel. hann komst í úrslit og þau verða sýnd í TV-inu og alles:) já hann er snillinn minn:) Til hamingju með árangurinn Palli minn:* en já og svo er hún anna maría að keppa á skíðum líka í RVK en hef samt ekki heyrt hvernig henni gengur. Pottþétt vel, hún er svo fjandi góð maður.. hún segir samt alltaf annað, en við hin vitum alveg betur:)

en já ég ætla ekki að hafa þetta lengra..bæbæ

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

16.03.2007 12:54:25 / thora9

;)

hann á afmæli í dag

hann á afmæli í dag,

hann á afmæli hann óli

hann á afmæli í dag

jeiiiii klapp klapp..

Til hamingju með afmælið óli=)

já ég vil ekki hafa þetta blogg langt bara að koma því á framfæri að hann Brynjólfur óli er 18 ára í dag, og í tilefni af því fær hann að vera á blogginu mínu:

Lokaball 2006 050

 

blogga meira næst=)


» 2 hafa sagt sína skoðun

14.03.2007 10:55:08 / thora9

jájá ég hef mínar afsakankir=)

já krakkar mínir þannig er mál með vexti að mín ástkæra talva var send suður í viðgerð þar sem skjárinn var e-ð bilaður, vantaði peru eða e-ð slíkt og ég var bara að fá hana núna fyrir 7 mínútum:) en já þessi blesaðir tölvukallar voru svo lengi að gera við hana, þetta getur varla hafa verið svo mikið. en já og ekki nóg með það heldur stálu þeir töskunnimini!! já ég er eki par sátt get ég sagt ykkur..

 en já nóg um það.. það er búið að vera alveg brjálað að gera hjá mér. við anna fórum á söngvakeppni MÍ á föstudaginn og það var svosem ágætt.. Þaaangað til að okkur var tylkinnt úrslitin. lýðurinn var ekki parsáttur með það get ég lofað ykkur.. já lagið sem vanv var eina lagið sem var flutt á ensku svo að við vitum ekkert hvernig það kemur til með að vera og svo á þetta bara eftir að vera skólanum til háborinnar skammar! og ég tala nú ekki um ef að sá sem syngur það rakar ekki af sér skeggið sem er farið að líta mjög illa út..  á laugardeginum var svo stuðmannaball.. við anna kíktum á rúntinn í þessu svaðalega færi sem var ekki beint gott, fórum næstum því út í sjó, það munaði bara svona hálfum meter, og ég get sagt ykkur það ég ég hef aldrei verið svona hrædd, hjartað mitt var bara á trilljón! en já sem betur fer bjargaði ég þessu fyrir horn. svo um nóttina þegar ég var að keyra henni heim drifum við ekki upp götuna.. hahahah enda ekki á fjórhjóladrifnum en já hún þurfti semsagt að labba upp götuna sína, æj greyið snúllan:)

en já þetta var fín helgi:) svo núna er önnur fín, við anna ætluðum sko að djamma, enda á hann óli afmæli á föstdaginn og ætlar að bjóða okkur í köku.. en nei nei hún anna ætlar að beila á þetta og fara suður á fis mót..! ég er ekki sátt og vona af mínum öllum sálar og lífsins kröftum að það verði ófært haha, ekki illa meint. en já ég verð semsagt bara eina stelpan... ætli ég lifi það ekki af hehe..  en ja svo er Sindri að fara að halda kveðjupartý því að hann er að fara til Japans sem skiptinemi og ætlar að kveðja lýðinn hehe en já ætli maður kíki ekki þangað líka eftir kökur hjá óla..

en já þetta verður bara gaman!

þá held ég að þetta sé komið gott og ég kveð núna..

blogga fljótlega aftir...lofa:)

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

21.02.2007 13:14:41 / thora9

21 febrúar

já ætli það sé ekki komin tími á að blogga.. en já á mánudaginn byrjaði ég í nýju vinnunni, var að vinna með Maríu og það var bara mjög fínt, ég er alveg að fíla þetta í botn.. held að ég eigi eftir að spóka mig vel í þessu öllu saman..:)

en já svo um kvöldið fór ég á rúntinn með Dagnýju og Andreu og já það var bara mjög gaman, við geðrum margt áhugavert haha;) eins og til dæmis að leika okkur með strumpaópla.. haha en já ætla ekkert að vera með neina fínar lýsingar á þessu=) já við rúntuðum í alveg dágóðann tíma og áttuum fínt spjall..  svo í gær var bara ósköp venjulegur þriðjudagur, ekkert gerðist og allt  gekk bara sinn vanagang.. en í dag er dagur númer 2 í vinnunni minni, aftur að vinna með Maríu=) svo eftir það ætlum við að kíkja í stúdíóið.. loksins komin með einhvern stúdíófélaga.. hehe já ég þirfti nú að fara að losa mig við nokkur auka kíló;)

hmm.. veit ekki alveg hvað ég á að segja meira í þessu blessaða bloggi mínu nema að það er rúmur mánuður þangað til að ég fer suður.. vúhú! heheh já hlakka geggjað mikið til að heimsækja hana örnu mína, Sigga og að sjálfsögðu hana Köru líf sætu, sem er orðin svo stór,vá maur hvað hún er buin að stækka mikið.. fyrir þá sem vilja vita það þá er arna nýbúin að setja myndir á barnaland svo að þið getið skoða hana..

 

en já ætli ég segi þetta ekki bara gott í dag


» 5 hafa sagt sína skoðun

19.02.2007 11:38:03 / thora9

bara hin fínasta helgi

já helgin var góð. Árshátíðin í MÍ var á fös, maturinn var í frímúrarasalnum on við urðum fyrir þeirra óheppni að einhver HÁLVITI bakkaði á okkur, sko málið er að við flautuðum þegar hann hóf að bakka, þá kom smá hik á hann og svo bara smakk!!!! og beint á fram stuðarann, ekki gott..ég var ekki sátt og oskrði á hann og spurði hvern andskotann hann væri að pæla og líka akkuru hann stoppaði ekki þegar við flautuðum. og viti menn, svarið var "ég bara heyrði það ekki" hahaha oh ég var svo brjáluð en það varð bara að hlátursefni hjá okkur seinna um kvöldið..=) en já svo fórum við inn á matinn, hlustuðum á loga bergmann sem var bara frekar fyndinn kapi:) já það var til dæmis mjög fyndið þegar hann sagði að 30 km ganga á gönguskíðum væri enginn íþrótt heldur einhvað fokking ferðalag:)

en já nóg um það, það var bara gaman á matnum og solles, en eftir hann fór ég á rúntinn með arnari G og Önnu maríu, já ég gleymdi því miður að kaupa miða á ballið svo að leiðir okkar skildust þegar hún fór þangað, þá fór ég með palla heim.. sorry anna, þettavar alls ekki ætlunin:) en bæti þetta upp seinna.

svo á laugardeginum vaknaði ég kl svona 1, horfði á grey's anatomi til klukkan svona 3 en þá fór ég til hennar mömmu e-ð að hanga. svo um kvöldið fór ég á rúntinn mað auju, sem við gerum allt of sjaldan, en já það vara bara gaman. sáum slagsmál þar sem svona 20 pólverjar áttu leik, og við sáum líka einmanna þjóðverja sem stóð á götuhorni og við vikuðum honum og e-ð svona frekar fynið haha. en já fórum heim þegar klukkan var að verða eitt og þá fór ég heim aftur að horfa á grey´s anatomi. eins og alltf, er alveg orðin veik fyrir þessum þáttum, var að horfa á fyrstu seríuna sko og kláraði hana á já 2 dögum haha.. en því miður og ég er alveg ónýt út af því þá er hlutfallið mitt á torrent ekki nógu hátt til að ég geti náð í seíu 2.. já líf mitt er bara búið... haha nei bara grín.

en já svo var SÍÐASTI dagurinn minn í bónus í gær, en yndislegt að vera hætt. en þarf samt að mæta í eitt stk vörutalningu á lau en eftir það eru tímar mínir taldir í bónus, það er að segja vinnutími:) já æði. svo fór ég heim og við palli fórum að sofa snemma bara.

hef ekki meira að segja...bæbæ


» 2 hafa sagt sína skoðun

16.02.2007 13:18:22 / thora9

árshátíð

já í dag er föstudagur og það verður árshátíð í skólanum um kvöld. Logi bergmann ætlar að vera að skemmta æa matnum og svo er ball með buff..:) keypti mér kjól og svonna fínerí og svo er hún Dagný mín að koma í bæjinn þannig ætli maður verði ekki að djamma með henni, evona ef ég þekki hana rétt;) en já við anna ætlum ap fara saman og kíkja svo á ball.. samt .oli ég ekki að böllun geti ekki bara verið á ísafirði, alltaf í bölungarvík og flateyri svo það er alltaf meira vesendið að reyna að redda sér heim og að vera driver er klárlega það leiðinlegasta sem maður gerir svo að.. já ég finn út úr þessu:) Pallinn minn að fara ð kepppa í sundi á morgun svo að það verður ekkert djamm á kallinum í kvöld..

en já ég er í alveg ótrúlega leiðinlegum enskutíma.. kennarinn er er væla e-ð og án djóks þá eru bókstaflega enginn að hlusta á hann!! haha æj greyið.. hann er bara svo leiðinlegur og ég bara skil ekkert sem hann segir svo ti hvers þá að hlusta.. hef ekki lagt það á vana minn hingað til að taka eftir..

hahah já og eitt fyndirð.. var í bókaprófi úr íslandsklukkunni.. áttum að lesa 146 bls, ég las 33 og fékk heila 8 á prófinu hahaha á meðan sumir sem lásu fengu lægra en ég, voða hlýt ég að vera gáfuð.. ekki satt? =) neinei, ætli ég hafi ekki bara verið heppin, þetta var nebbla bara krossaprfó. en já og svo í morgun var ég í hlutaprófi í ísl og það gekk bara ágætlega..

og hildur, skilaboð til þín.. þú ert að tala um e-ð vandamál með að taka ákvörðum.. koddu bara hingað og ekkert rugl.. hlustaðu á lýðinn, meiri hlutinn ræður. við viljum fá þig hingað og þú hefur bara ekkert um það að segja!!! eins og þú sérð ef þú lest á kommentunum á síðunni þinni.

ég hvet sem ALLA til að fara á blog.central.is/hildurm9 og kommenta til hildar að hún eigi að koma hingað og ekkert kjaftæði:)

takk fyrir mig pent;)


» 2 hafa sagt sína skoðun

12.02.2007 10:43:39 / thora9

bloggið komið aftur í gang;)

já hér sit ég í alveg endanlega leiðinlegum náttúrufræðitíma, fyrir þá sem vilja vita það þá er það nát 123, og já það er vægast sagt leiðinlegur tími og ekki hægt að segja að kennarinn sé sá skemmtilegasti...

en já mér leiðist semsagt svo mikið að ég bara ákvað að fara að blogga á ný.. hvernig lýst ykkur á það??

það er alveg helling búið að gerats núna um þessar mundir, ég er um það bil að fara að skipta um vinnu, já síðasti dagurinn minn í bónus er á sunnudaginn og svo þarf ég að mæta í vörutalningu í log mánaðarsinns.... en já ég er sem sagt að fara að vinna við skammtímavistun fatlaðra barna, með henni maríu minni sem ég sakna svo eftir að hún hætti í bónus og mér hlakkar geggjað mikið til að byrja. Þetta verður örugglega mjög skemmtilegt og nottlega, reynsla:) Get ekki sagt að ég eigi eftir að sakna bónus það sem ég er búin að vinna þar í 3 og hálft ár og held að það sé alveg nóg, tími til að skipta um umhverfi! Sandra líka farin Til Hondurass þannig að það er eiginlega ekkert skemtilegt sem bíður manns þegar maður mætir í vinnuna.. Nema nottla hún heiða gella, sem er jú reyndar líka að fara að hætta og hún anna maría... oh svo má ekki gleyma ómótstæðilegu bónus partýjunum sem eru alltaf þau bestu;) já það var einmitt kveðjupartý núna nýlega og það vara bara geðveikt stuð.... jess en við Marí höldum bara okkar eigin partý ekki satt??

en já hér keur ein mynd frá bónuspartýiju :

Mynd númer 34

en já ég ætla þá bara að láta þetta gott heita eg vil endilega að þið kommentið ed þið stiðjið það að ég byrji aftur með mitt fróðlega blogg;)

 ég kveð þá að sinni, blogga aftur seinna;)


» 6 hafa sagt sína skoðun

18.10.2006 11:07:16 / thora9

kommentleikur

hæhæ allir

það er smá kommentleikur í gangi sem ég kvet alla til að taka sér smá tíma í. Þetta eru bara 19 stuttar spurningar sem þið eigið að svara í komment á síðunni.

takið hendur upp úr vörum og ekkert rugl!!

1.Hvað kallarðu mig?
2..Hefurðu heyrt mig syngja, ef svo er hvernig hljómaði ég?
3. Hvað á ég eftir að vera að gera á týpísku laugardagskvöldi eftir tvö ár?
4. Þegar þú hugsar um mig, hvaða tvö lög dettur þér fyrst í hug?
5. Ef þú þekktir mig ekki, og mættir mér einhverstaðar, myndirðu halda að ég væri á lausu eða föstu?
6. Þegar þú hugsar til mín hvaða fimm hlutir detta þér fyrst í hug?
7. Hvernig sérðu mig fyrir þér í hljómsveit?
8. Hvernig stelpa er ég, og í hvaða týpu flokkarðu mig?
9. Hvað erum við mörg í fjölskyldunni?
10. Hefurðu öfundað mig? Hvers vegna?
11. Hver er uppáhalds söngkonan/söngvarinn minn?
12. Hvaða lag minnir þig mikið á mig?
13. Hverjum öðrum er röddin mín líkust?
14. Hvað giskarðu á að ég verði gömul þegar ég trúlofa mig ?
15. Hversu vel telurðu þig þekkja mig?
16. Hvernig stráka fíla ég?
17. Hvað geri ég oftast þegar ég á frítíma?
18. Hvað er mest einkennandi við mig?
19. Hvaða búðir elska ég að fara í?


» 5 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 8